29nóvember
Fékk þetta sent.... og þetta á ansi vel við mig þessa dagana.
1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með venjulegum spilum í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er vegna þess að þeir eru ekki að blogga, eru ekki með MySpace og/eða á MinnSirkus.
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjærstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn til að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega leist til baka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þína, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri á einhvern hátt.
13nóvember
Nýi tannburstinn minn heitir Navigator plus.
Ég hef sennilega aldei eitt svona litlum penign á einni viku eins og í síðustu viku.
Og aldrei lært svona mikið.
Mig langar að fara í skóla á Nýja Sjálandi.
Um næstu helgi ættla ég að fara í jóla tívolíið í danmörku.
Ég ættla lika að vera full og kaupa mer föt um næstu helgi.
Ég ættla að kaupa mer efni og byrja að sauma kjóla á eftir.
29október
fáránlega stutt síðan ég bloggaði síðast en ég ættla sammt að skrifa smánuna..
Síðust 3-4 nætur er mig neibbla búið að dreyma allveg endalaust mikið og bara alla nóttina og svo er ég alltaf að vakna á næturna og man þá svona nokkurnveginn hvað mig er búið að vera að dreyma. Í morgun var mig að dreyma einhvern hellings draum sem ég man bara endann og endinn var kreisí martröð. Ég sat við eithvað borð og var með mömmu og einhverjum öðrum, man ekki hvað ég var að gera en ég fann alltí einu svona eins og væri köngulóa vefur á mer og einhvernvegin yfir er og í andlitinu á mer svoég stóð upp en það varð alltaf meira og meira og svo var könguló í honum, bara lítil en hún stakk mig og það var bara geðveikt vont og svo var ég orðin oll þakin í vef og fullt af köngulóm á mer og ég var stungin eða bitin eða eithvað alveg 5 sinnum áðurenn ég vaknaði... og alltaf geðveikt vont. Svo var ég bara í brjáluðu sjokki þegar ég vaknaði, ég hef lika ekki oft fundið til í alvörunni í draumum... Svo aðeins skemtilegri draumur sem mig dreymdi í fyrri nótt þá var ég á leiðinni að endurnýja ítölsku kennitoluna mina ( sem bæ þö vei maður þarf ekkert að gera) og tók svona pínulítinn tramma. Inní honum voru Teddi sem ég var hrifin af í 7.bekk og Hrólfur sem var lika í bekk með mer. Og svona 12 fangar, veit ekki hvernig eg vissi það en allavega þá var þetta eithvað brjálað ferðalag og við vorum öll geðveikt kát og glöð með það... svo komum við loksins þangað, sem var eithvað sem var mjög líkt Seltjarnarnesi í kolniða myrkri og sáum ekkert nema einhvern vita út í rassgati en gaurinn sem var að keyra sagði að það væri allt í lagi því þeir kæmu til okkar gaurarnir með öll blöðin og viti menn þeir gerðu það og í draumalandi erum við öll komin með nýja kennitölu....
28október
blehhh... mer er sagt að blogga meira. Það er bara allveg sorglega lítið að frétta af mér ekkert slúður af viti. Ég eypi öllum minum tíma þessa dagana í að læra fyrir þessa 2 áfanga sem eru byrjaðir annar er reyndar ógó skemtilegur heitir Personal design og kennir okkur hitt og þetta um illustrations.... Og mér til mikillar hamingju þarf maður EKKI að geta teiknað til þess eða svo seigir kennarinn minn allavega, sem er sona 25 ára kona sem flissar allveg óstjórnlega mikið. Ég er sammt því miður ekki orðin neit sjúklega góð í þessu, vonandi að þetta sé eithvað sem lærist..
Svo eru Halloween partý útum alla Milano borg á þriðjudaginn næsta og ég ættla að mæta í einhvert af þeim. Fara í búning og reyna að gera eithvað af mér.
Svo fer ég til Denmarrk 17 nóvember að hitta Ingibjörgu...
15október
Það er svo sem hitt og þetta að gerast hjá mér í útlandinu ég var náttla að klára fyrri vikuna af tveim í lingua due og gengur bara ágætlega og hver veit nema þetta fari bara að koma með ítölskuna. Svo var 1. dagurinn minn í skólanum, Ied, á föstudaginn fengum stundatöflu og allskonar blöð, yours truly mætti reyndar 40minutum of seint af því að ég var að stofna mer bankareikning á ítalíu og gerði smá mistök í tíma útreikningum.... reiknaði á íslenkum tima ekki ítölskum.
Það var svo partí hjá Sólrúnu eða reyndar afmælispartí hjá sænskri stelpu sem hún býr með á föstudaginn. Það varð samt að sjálfsögðu þannig að það voru mest partinn íslendingar, en allavega æðislega gaman að hitta allt þetta pakk aftur eftir sumarið, svo var farið á enhverja staði og rugglað svolítið meira. Eins og eftir allt alvöru djamm þá laugardagurinn á hinni svo kölluðu "walk of shame"
í djamm fötunum og ógeðslega sæt,á leiðinni heim.
Svo er ég að plana smá helgarferð vonandi bara á næstu 3 vikum til kaupmannahafnar að hitta hana Ingibjörgu mina... Hlakka til að sjá þig tútta...
jæja verið þið nú dugleg að skrifa eithvað sætt í gestabókina
Bless Bless í bili....
10október
Ferðasagan er frekar stutt og leiðinleg svo ég ættla ekkert að vera að tíunda hana fyrir ykkur. Nema að segja frá því að brunaboðin á heathrow fór í gang á svæðinu sem eg var á og allir reknir í annan enda á húsinu, en alltsaman hjómar þetta meira "töff " en það var svo ég ættla ekkert að segja ykkur hvernig það var.
Hún Linda er allavegana búin að vera svo alminilega að hýsa mig þó hún sé ekki einu sinni á landinu ég bara fékk lykla og gjörðu svo vel.þetta er bara hin fínasta íbúð allt nýtt en kanski soldið lítil. það verður síðan allt saman ákveðið seinna hvar ég verð í vetur. Svo er ég búin að kíkja á eitt mílano djamm (Ingibjörg þig vantaði) með Markúsi og Danna merkilega gaman bara og ég er að spá í að fá þá til að fylgja mer alltaf á djammið hvort sem þeir eru að djamma eður ei því ítalirnir greinilega þorðu ekkert í þessa háu myndarlegu karlmenn og létu mig bara nánast allveg vera. þá er þetta bara komið stoltur eigandi nýrrar blogg síðu hveður ykkur í bili.
In conclusion, og ég fékk smá hjálp þar.... þá er Marvin sætastur og bestastur.